Ég valdi greinina Beyond Green eftir Stephanie Smith.
Er list orðinn sjálfbær er hugtak sem 13 listamenn frá U.S.A og Evrópu tóku sig saman og unnu að í verkefni sem þeir kalla Beyond Green. Sjálfbær list er hugtak sem hefur möguleika á að breyta okkar hversdagslífi í gegnum margskonar málefni. Hugtakið felur í sér að ,,verða grænn,, Þó að það sé enn óstöðugt hugtak, er þetta á heildina séð siðferðislegra, raunsærra og fjölbreyttari stefna sem hefur möguleika að beina hönnun í átt að framförum, fyrirbæri sem hönnuðurinn Bruce Mau kallaði ,,stóru breytingunna,,. Nokkuð margir eru farnir að aðlaga þessa hugmynd að sér t.d. mótmælendur, listamenn, fyrirtæki og meðalmaðurinn. Mörg fyrirtæki eru farinn að setja sig upp sem ,,græn fyrirtæki,, en margir eru hræddir um að það sé aðeins auglýsingarbrella. Sjálfbær list setur nýja hugsun í framkvæmd: að breyta ímynd um hvernig við lifum og venjulega hluti daglegs lífs.
Listamennirnir þurfa að hugsa og hanna eftir því hvort verkið eigi eftir að nýtast eitthvað, ekki bara að búa til hlut sem verður svo hent og eyðileggur umhverfið.
Upp úr 1960 fóru listamenn að íhuga list út fyrir listasafnið. Fyrirspurn um landlist fór að verða meiri og fól í sér að listamenn keyptu land og notuðu það eins og þeim sýndist og kölluðu svo sjálfbæra list. En frá 1970 hefur eftirspurn þess konar listar ekki verið mikil því listin er komin mikið inn í borg og bæji.
Upp úr 1990 fór hönnun og lífstíll að tvinnast saman og hönnuðir fóru að einbeita sér mikið að því og einnig að gera hlutina aðgengilegri og sést vinna þeirra t.d. í Ikea þar sem reynt er að hafa hönnun og þægindi í fyrirrúmi og kallast ,,hönnun fyrir alla,,.
Í greininni er svo talað um hvernig list eins og listahópurinn Beyond Green er að gera, komi til með að færast inn á listasöfn, því oft hentar illa þess konar list sem þeir fást við en samt sem áður þurfa listasöfn að geta sýnt allar tegundir listar. Með þeirri miklu fjölbreytni sem Beyond Green býður upp á breyta þeir algerlega nútímalist og hefur það gefið þeim mörg tækifæri til að halda áfram með þetta verkefni sitt og hafa þeir öðlast mikla viðurkenningu í listaheiminum.
Ég velti því fyrir mér hvort að það sé ekki tímabært að fara að skoða það sem sjálfbær list hefur fram að færa, nú á kreppu tímum. Ég sé fyrir mér að það gætu margir nýtt sér hönnun eins og búnaði til að nýta sólarorku. Það má hita upp híbýli, búa til rafmagn, reka sólarorku knúna bíla. Það mætti jafnvel veita þeirri umfram orku sem verður til út í samfélagið og þannig færu rafmagnsmælarnir að snúast í hina áttina.
Kveðja
Guðrún Þorkels
11/20/2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Takk fyrir fína umfjöllun um þessa grein Guðrún. Ég er sammála þér með að ef listamenn, höfundar, hönnuðir og jafnvel fjölmiðlar reyndu að beita sér í gegnum sitt fag að sjálfbærri þróun myndi að hafa sterk áhrif út í þjóðfélagið. Fólk er líka held ég mun móttækilegra fyrir því að "verða grænni " nú en bara fyrir 1-5 árum. vonandi nær sú þróun góðum grundvelli og fólk og hugsanasmiðir hugsi jákvætt og einlægt um sköpun sjálfbærrar þróunar en sjái það ekki sem einhverja gróðratækifæri.
SvaraEyða