
Jurgen Bey - endurnýting í hönnun
Jurgen Bey er án efa einn af áhugaverðustu hönnuðum samtímans. Hann er hollenskur með aðsetur í Rotterdam. Jurgen Bey er í hópi þeirra hönnuða sem fyrst mynduðu Droog Design (1993) og komu Hollandi á kortið sem hönnunarlandi.
Verk Jurgens vekja fólk til umhugsunar um gildi hlutanna, fjöldaframleiðslu og neysluþjóðfélagið. Hönnun hans einkennist af hugrekki þess sem fetar ótroðnar slóðir en uppsprettan er gjarnan sótt í mannlega hegðun, siði, gildismat og síðast en ekki síst sögu hlutanna. Í verkum sínum notar Jurgen gamla hluti í bland við ný efni og aðferðir og framkallar þannig nýtt gildi í verkum sínum,þannig öðlast hlutirnir nýtt gildi og segja nýjar sögur.
Jurgen kennir við Hönnunarakademíuna í Eindhoven og Royal College of Art í London. Jurgen Bey tók þátt, ásamt samstarfsfólki sínu hjá Studio Makkink&Bey, í verkefninu 8+8 MADE IN HAFNARFJÖRÐUR í september 2008 þar sem framleiðslufyrirtæki í Hafnarfirði voru í samstarfi við hönnuði við að þróa nýja vöru og skapa framleiðslu fyrirtækjanna sérstöðu.
Jurgen Bey hefur verið gestakennari við Listaháskóla Íslands
Mér finnst afar mikilvægt að við séum meðvituð um slíkan snilling sem Bey er og þeir eru heppnir sem hafa fengið að kynnast verkum hans og verið undir hans leiðsögn. Ég mæli með því að við nýtum okkur kenningar hans, hann hefði líklega aldrei komist alla þessa leið nema af því að hann er óhræddur, útsjónarsamur og gerir hlutina á eigin forsendum. Ég er sammála honum og vonandi hafið þið einhverjar skoðanir á því þegar hann lítur til fjöldaframleiðslunnar og neysluþjóðfélagsins.
Takk kærlega Anna Snædís
Endilega kíkið á heimasíðu hans.
http://www.jurgenbey.nl/
Takk Anna Snædís fyrir góða kynningu á Jurgen Bey!
SvaraEyðaÉg er ein af þeim sem kannaðist við eitthvað af hans hönnun en vissi aftur á móti lítið um hönnuðinn sjálfan. Nú er ég fróðari um hann, ég skoðaði heimasíðu hans og varð enn hrifnari af honum.
Hann er svo sannarlega hugrakkur og tekst einhvern veginn að koma hlutunum á æðra plan. Hann bendir okkur á það að við séum yfirleitt allt of upptekin af því að hugsa fyrst og fremst um það að græða á hlutunum og það sem fyrst (þetta á auðvitað einstaklega vel við okkur Íslendinga).
Ljósakrónurnar hans eru algjör snilld að mínu mati, bara ósköp venjulegar á daginn en breytast síðan í t.d. glæsilegar kristalsljósakrónur þegar kveikt hefur verið á þeim. Síðan er trébekkurinn hans skemmtilegur, þessi grófi trjádrumbur með ósköp venjulegum stólbökum úr bronsi!
Kveðja, Svana.
Sæl Anna Snædís. Takk fyrir kynningu á frábærum hönnuði.Það er alltaf svo gaman að fá ábendingar um áhugaverða hugsjóna- og listamenn eins og Jurgen Bey . Hann er augljóslega skemmtilega hugrakkur og einstaklega útsjónarsamur.Það er gott að fá slíkt fólk til starfa hér heima og ég tek undir það sem þú segir að þeir eru heppnir sem fengið hafa leiðsögn hans.
SvaraEyða