11/16/2009

Sjónrænar myndir



Náttúrusýn



Ísland, Ísland. Eg vil syngja
Um þín gömlu traustu fjöll,
Þína hýru heiðadali
Hamraskjól og vatnaföll.
Þína fögru fjarðarboga
Frjálsa blæ og álftasöng.
Vorljós þitt og vetrarloga
Vallarilm og birkigöng.
Hulda




Ljóð Huldu skáldkonu flytur okkur boðskap um hvernig náttúran á að birtast okkur um ókomna tíð. Okkar stutta heimsókn hér á jarðríki skiptir alltaf meira og meira máli fyrir móður náttúru. Með velmegun, framleiðslu og tækni verður sífellt meiri ágangur, úrgangur og mengunarvaldar sem gera stutta dvöl okkar hér á jörð ógnvekjandi fyrir komandi kynslóðir ef við höldum ekki vöku okkar. Sem betur fer eru raddir orðnar nokkuð háværar sem láta sig náttúru og náttúruvernd varða. Ef vel á að vera verðum við að hjálpast að við að koma náttúrunni í rétt jafnvægi. Sjónræna verkefnið mitt fjallar um þessa þætti. Annarsvegar er það trjábolur sem hefur orðið fyrir eyðileggingu elds en móðir náttúra hefur þegar hafist handa við að aðlaga skemmdina að náttúrunni og uppbygging nýrrar flóru komin af stað. Ef við mannfólkið ætlum að sjá fram á breytingar verðum við að fylgja móður náttúru eftir og gera hið sama. Umbreyta því sem miður hefur farið yfir í jákvæðan farveg fyrir náttúruna. Hins vegar er ákall til okkar allra, Lifið heil, sem kom fram á fyrirlestri Ólafs Páls heimspekings. Ólafur vildi meina að þessi orð sameini bæði skynhvöt og formhvöt okkar. Ef við lifum heil þá lifum við jafnframt í jafnvægi við umhverfi okkar og náttúru.




.





Sólrún Guðbjörnsdóttir

1 ummæli:

  1. Blessuð Sólrún

    Flottar myndir hjá þér og glæsilegt verk :) Það er gaman að sjá hvernig náttúran er farin að aðlaga trjábolinn aftur að náttúrunni og byggja upp nýja flóru. Ég er sammála þér að þetta er eitthvað sem við mannfólkið þurfum að hafa í huga, að leggja rækt í það að viðhalda og byggja upp heilbrigða náttúru.

    Kær kveðja, Sóldís

    SvaraEyða

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.