11/18/2009

sjónrænt verk


Urð

Verkið heitir Urð og er afkvæmi náttúrunnar. Urð varð til þegar ég gekk um grenndarskóg Fossvogsskóla og hugsaði hvað gæti á einfaldan hátt túlkað sjálfbæra þróun í sjónrænu verki en jafnframt verið leið til að vekja áhuga nemenda á umhverfi sínu og náttúru. Urð og grjót er náttúruauðlind sem við njótum við strendur landsins þar sem hafið hefur meitlað og sorfið og meitlað bergið. Einnig er fegurðin í fjöllunum sem geyma fjölbreyttar steinategundir. Gróti var hlaðið í vörður svo forfeður okkar villtust ekki af leið á ferðum sínum yfir fjöll og heiðar. Urð og grjót hefur verið unnið og notað til vegagerðar, húsagerðar, listgerðar og skapað atvinnu.
Urð getur verið efniviður í skógartröll, sögupersónu eða listaverk. Urð getur sameinast náttúrunni og horfið. Urð er gjöful.

Kveðja Kristín

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.