


Ég ákvað að gera mitt myndverk í tölvunni og nota Paint. Þegar þessu er lokið er verkið endalega horfið.
Verki 1. Ég bjó fyrst til „frumefni“ því frumeind er byggingareining alls. Ég valdi hringform, vegna þess að Brynhildur minntist á hringrás efna og orku í náttúrunni sem fyrirmynd fyrir okkur mannfólkið til sjálfbærrar þróunnar. Hringirnir eiga að tákna hringrás orku og efna. Augað í miðjunni á að tákna vakandi auga. Áferðin átti að vera eins og skófir.. e-ð gamalt. Svartur bakgrunnur er alheimurinn eða eitthvert tóm. Þeir sem nenna að skoða myndina sjá að inni í henni eru orðin „Af moldu ertu kominn“ og á neðri frumeindinni „og að moltu skaltu aftur verða“. Þannig lokast hringurinn og þeir sem eftir lifa syngja ...allt eins og blómstrið eina.
Verki 2. Ég reyni að umbreyta hugtökum í mynd. Það efra er sjálfbær þróun, hringrás, sveiganleiki, viðnám. En það neðra grænir þjóðhagsreikningar.
Verk 3. Brynhildur leggur einnig áherslu á að náttúran hefur gildi til lífshamingju og tilvistargildi. Það er einmitt grunnurinn að verkinu. Geimfarar hafa talað um þegar þeir horfi á jörðina utan úr geimnum fyllist þeir væntumþyggju. Þessi nálgun birtist líka í myndbroti Carls Sagans sem ég nota sem kveikju. Á efri myndinni er lítil hvít ör sem bendir á jörðina í vetrabrautinni. Ef við getum sameinaðst um að horfa á jörðina sem heimili okkar allra þá hjálpar það örugglega til í baráttunni fyrir sjálfbærri þróun.
Áhugavert Jón,
SvaraEyðaMér finnst svolítið flott hvernig verkið er horfið þegar þetta er búið... ekki búið að eyða pappír, bleki eða önnur efni í verkið. Góð hugsun út af fyrir sig.
Grænir þjóðhagsreikningar... flott. Kannski listaverk sem á erindi inn í fjármálaráðuneytið? he he.
Allt önnur nálgun hjá þér, skemmtilegar pælingar og áhugavert hvernig þær eru settar fram.
Kveðja,
Karóína
Jón, frábærar myndir. Litasamsetningin og myndbygging skemmtileg í þeim öllum. Mynd 1 er mjög lífræn. Hugmyndirnar áhugaverðar og hvernig þú lýsir þeim í tengingu við fyrirlesturinn útskýrir þær vel.
SvaraEyða