11/24/2009
Bryndís Snæbjörnsdóttir
Fór á frábæran fyrirlestur í gær hjá Bryndís Snæbjörnsdóttur. Bryndís er fyrsti íslenski myndlistamaðurinn sem líkur doktorsprófi. Hún sagði frá doktorsverkefninu sínu og var ég mjög hrifinn. Einn hluti af þremur í doktorsverkefninu var vinna með ísbirni. Það var sá hluti sem hún sýndi okkur í gær. Það sem mér fannst spennandi var þessi "tilvistarframlenging" frá því ísbjörn er skotinn til þess að hann er uppstoppaður og áhorfandinn stendur fyrir framan. Hvaða dýr var þetta? Af hverju var það skotið eru spurningar sem vakna. Tilvistin færist frá hinu uppstoppaða dýri inn í einhverja náttúrustöð í heilanum og lifir áfram... Þar vekur einhverjar tilfinninga hjá mörgum að sjá dauð dýr eins og ísbjörninn sem var skotinn fyrir norðan í fyrra. Merkilegt. Þau er líka merkileg þessi viðbrögði við Tálknarollunum, facebook fylltist að "björgum rollunum" - Þannig geta dýr í náttúrunni verið eins og tengill manna við eitthvert "náttúruelement". Þeir sem vilja kynna sér verk Bryndísar geta skoðað hér.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Sammála rannsóknir Bryndísar eru alveg frábærar. Áleitin spurning hvar endar náttúran.
SvaraEyðaMér finnst mjög flott hvernig hún útskýrir að ísbirnir eru venjulega á náttúrugripasöfnum sem stakir birnir fulltrúar sinnar dýrategundar. Þegar þeir eru settir upp í hóp öðlast hver þeirra sinn persónuleika og verður einstakur í hópnum.
Ég hvet ykkur til að kynna ykkur vel verk hennar. Sérstaklega í tengslum við meistaraverkefnið ykkar sem getur mögulega verið að hluta til sjónrænt.
Kveðja Ásta