
Ég hef mikið verið að hugsa um rusl. Myndir af dýrum sem hafa fest sig í plastrusli eða borðað það í trú um að ruslið væri girnileg fæða hafa verið mér ofarlega í huga. Ég ákvað því í tilraunaskyni að safna ruslinu sem fellur til á mínu heimili í nokkra daga og afraksturinn var mikill, sóðalegur og mun meiri en ég hafði getað ímyndað mér. Síðan í júlí hef ég plokkað miðana af tómum barnamatskrukkum og þvegið og safnað. Ég á því orðin allnokkurn stafla af tómum glerkrukkum sem áttu sér ekkert hlutverk. Ég hef núna gefið þessum krukkum nýtt hlutverk. Verkið er leikur að ljósi og táknar fyrir mér upphaf endurvinnslu á mínu heimili. Birtan bæði inni sem úti hefur mikil áhrif á verkið og það breytist eftir sólarganginum. Einnig endurspeglast umhverfið í krukkunum. Verkið sýnir okkur að hægt er að finna fegurð í ruslinu okkar en einnig það gífurlega magn sem til fellur á stuttum tíma. Myndirnar eru teknar á mismunandi tíma dags.


Sæl Ragnhildur og takk fyrir þetta. Það er ótrúlegt sem getur safnast af drasli hjá manni og flott að þú skildir hafa fundið nýtt líf fyrir krukkurnar þínar (svo sendir þú drenginn að heiman með þetta listaverk þegar hann verður stór). Ég velti því fyrir mér þegar ég skoðaði myndirnar að það væri gaman að prófa að hafa eitthvað í krukkunum og fór að láta mig dreyma um mismunandi litað vatn í þeim og hvernig ljósið myndi þá koma í gegn.
SvaraEyðaKveðja
Guðrún Þorkels
Sniðug hugmynd Ragnhildur. Mér datt í hug þegar ég sá allar þessar krukkur að setja brot af því besta úr náttúrunni í krukkurnar svona svipað og einhver listamaðurinn eða konan gerði með glervegginn. Man ekki hver það var en það var mjög flott.
SvaraEyðaÞað er hægt að nýta allt og krukkurnar eru það margar að hægt er að gera ýmislegt skondið og skemmtilegt við þær.
kv. Rannveig
Sæl Ragnhildur. Skemmtileg hugmynd með krukkurnar og ljósið. Svo auðvitað krukkurnar öðluðust nýtt líf með þessu móti. Ef til vill væri hægt að setja ljósa liti í krukkurnar til að sjá hvernig ljósið brotnar þá og hvernig endurkastast verður frá litunum.
SvaraEyðaKveðja Anna
Þetta finnst mér algerlega dásamlegt! Kannski vegna þess að ég er sjálf með eitthvað "krukku-blæti" en ég tel það bara af hinu góða svo lengi sem maður er móttækilegur og opinn fyrir hugmyndum. Ég sá í eldgamladaga heimildarmynd um fólk í BNA sem bjó sér til eitt stykki HÚS úr glerflöskum. Sennilega situr það svona kyrfilega fast í undirmeðvitundinni, því Krukkuborg minnir mig á það :D Haltu áfram af plokka miðana, því þetta gæti fætt af sér fleiri frábærar hugmyndir :D
SvaraEyðabæ í bili,
Erna Sigga
Takk fyrir. Flottar hugmyndir. Mér finnst flott að endurtaka sama hlutinn, bæði er það eitthvað svo "endurvinnslulegt" en svo er einhver þráhyggja í að hafa margt af það sama, margar krukkur, margar dósir o.s.frv. En glerið er líka gagnsætt - eins og allt á að vera.
SvaraEyða