11/24/2009

Tim Noble og Sue Webster

SKUGGALIST

Listamennirnir Tim Noble (1966) og Sue Webster (1967) eru breskir listamenn sem búa og starfa saman í Shoreditch í London. Þau eru meðal frægustu listamanna sinnar kynslóðar í Bretlandi, en þau kynnstust þegar þau voru við BA nám í Nottingham Trent Háskólanum.

Helstu verk þeirra eru unnin úr rusli sem þau tína af götum Londonborgar. Ruslinu stafla þau saman í hrúgu og varpa síðan ljósi á verkið, en með því móti ná þau að töfra fram ótrúlega nákvæmar skuggamyndir. Útkoman er sem sagt skugginn af ruslinu sem myndar oft á tíðum skuggamyndir af manneskjum og þá gjarnan sjálfsmyndir.

Líta má á verk þeirra sem ádeilu á neyslusamfélagið, en þau sýna okkur einnig að það er hægt að sjá fegurð og rómantík úr ruslinu í kringum okkur. Með verkum sínum kanna þau áhrif neytenda á menninguna og nota þau ýmis tákn, en dæmi um þess lags verk er $ frá árinu 2001 sem er dollaramerki sem birtist sem ljósaskilti.

Í verki þeirra Dark Stuff - Dark Stuff frá árinu 2008 vinna þau með þá hugmyndafræði forn-Egypta að guð gæti tekið mynd af dýrum. Dark Stuff kannar viðhorf okkar til lífs og dauða, fegurðar og ljótleika. Verkið samanstendur af ýmsum tegundum af múmíudýrum á málmstöng – ljósi er varpað á verkið og skugginn myndar tvær andlitsmyndir.

Ruslverk þeirra Noble og Webster heilla mig mjög mikið og tengjast þessu námskeiði. Hugmyndin að sjá ekki listina í verkinu fyrr en í ákveðnu ljósi finnst mér mjög skemmtileg.

Veflóðir:

http://www.britishmuseum.org/whats_on/all_current_exhibitions/statuephilia/noble_and_webster.aspx

http://thinkorthwim.com/2007/09/21/tim-noble-and-sue-webster/

http://www.acrstudio.com/projects/word/nobel_tim_webster_sue/

http://www.youtube.com/watch?v=I_zre1ddXPA

http://www.youtube.com/watch?v=JCxVDa6CG60&feature=related

Mér tekst ekki að setja inn myndir, en ég mæli með því að þið kíkið á vefslóðirnar og skoðið verkin þeirra.

Kær kveðja,
Sólveig Eiríksdóttir

1 ummæli:

  1. Sæl Sólveig takk fyrir þessar slóðir.
    Mjög gaman að skkoða.
    Kveðja Anna Gunnbjörnsdóttir

    SvaraEyða

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.