11/18/2009


Málverk

Þórarinn B. Þorláksson var einn af fyrstu málurum sem málaði friðsælar, rómantískar myndir af ósnortinni náttúru Íslands. Íslendingar eru stoltir af sérstöðu náttúrunnar með réttu en hver er staða náttúru Íslands í dag? Sjáum við ennþá fyrir okkur friðsælu, rómantísku myndir Þórarins þegar við hugsum til náttúrunnar? Sjáum við raflínurnar, framkvæmdirnar og ruslið sem nú er óneytanlega meira áberandi en á tímum Þórarins? Eða viljum við ekki sjá það? Erum við að ganga hraðar á náttúru Íslands en við ættum að gera? Erum við að gefa eitthvað til baka til náttúrunnar af því sem við höfum tekið? Erum við að passa upp á náttúruna þannig að komandi kynslóðir geti notið og notað hennar eða munu þeir þurfa að leyta til málverka og ljósmynda til að sjá hvernig náttúra Íslands eitt sinn var?


Myndverkið vísar í málverk Þórarins B. Þorlákssonar Stórisjór og Vatnajökull frá árinu 1921 út frá ofangreindum hugleiðingum.

3 ummæli:

  1. Flott mynd Karólína!
    Góð skilaboð sem mikilvægt er að vekja athygli á í ljósi kreppu, stóriðjuframkvæmda og aukinn átroðningur túrismans. Mér finnst flott hvað myndin í sig segi mikið. Hún er sem slík ,,auðlesin".

    Kveðja,
    Anna Sofia

    SvaraEyða
  2. Áhrifarík útfærsla. Það ergir mann einmitt þegar maður ætlar að njóta náttúrunnar þegar rusl, umferðarmerki, raflínur og álver ofl. stendur svo í vegi fyrir því að maður geti dáðst og notið þess fallega í náttúrunni.

    SvaraEyða
  3. Mögnuð mynd og mjög góð skilaboð. Er náttúru bara ósnortin náttúra eða er ekki mikilvægt að geta séð fegurð hennar þrátt fyrir að á hana hefur verið gengið? Verðum við ekki að læra að bera virðingu fyrir umhverfi okkar sama hvernig fortíðin hefur umleikið það? Oft sjáum við ekki fegurð landsins fyrir raflínum, rusli og öðru sem er þar ekki frá náttúrunnar hendi en oft er nóg að líta sér nær og gefa hinu smá í kringum okkur athygli.
    Kveðja
    Ragnhildur

    SvaraEyða

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.