Andy Goldsworthy fæddist árið 1956 í Cheshire í Englandi. Hann stundaði nám við Bradford College 1974-1975 og Preston Polytechnic 1975-1978. Hann býr nú á Skotlandi.
Andy Goldsworthy hefur unnið með náttúruna til þess að útbúa listaverk, oftast í náttúrunni en stundum innandyra allt frá námsárum sínum hjá Preston Polytechnic. Hann notar það sem náttúran á hverjum stað gefur af sér en það geta verið laufblöð, vatn, steinar, sand, leir, prik, klaki, viður, gras og fleira.
Andy Goldsworthy vinnur að miklu leyti úti í náttúrunni á Englandi og Skotlandi en hann ferðast einnig víða um heiminn til þess að útbúa listaverk. Hann hefur meðal annars unnið í óbyggðum Ástralíu, í norður Kanada, Japan og á norðurpólinn, svo dæmi séu tekin.
Verk hans eru sýnd reglulega meðal annars í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum.
Mörg listaverk hans eru þess eðlis að þau eyðast með tímanum í náttúrunni en þess vegna eru ljósmyndir, skráningar og útgáfu bóka stór og mikilvægur hluti af hans starfi sem listamaður.
Það er að mörgu leyti náttúran sem ræður ferðinni með Andy Goldsworthy, hann kemur inn í náttúruna á hverjum stað, ígrundar og skoðar umhverfið, náttúruna og möguleikana sem fyrir hendi eru. Verkin geta verið árstíðarbundin og líftími þeirra misjafnlega langur, jafnvel innan sólarhrings geta verkin hans verið breytt eða máð út af náttúrunni sjálfri. Önnur verk eru langlífari, jafnvel staðsett innandyra. Form og litir sem hann vinnur með eru af náttúrunnar hendi og verkin hans einkennast af friðsælu jafnvægi þeirra í náttúrulegu umhverfi. Verk hans eru að mínu mati eins konar óður til náttúrunnar þar sem hann endurskapar fegurð með fullri virðingu og skilning á eðli náttúrunnar.
Efni sem stuðst var við:
Goldsworthy, Andy. 2000. Time. Harry N. Abrams, Incorporated, New York.
Mjög fín samantekt Karólína
SvaraEyðaKveðja Ásthildur
Flott kynning hjá þér Karólína. Hann er yndislegur hann Andy hann lætur ekkert ósnortið sem viðkemur náttúrunni. Mér skilst að hann sé alltaf að prufa sig áfram með ný efni eins og kinda og kúaskít sem hann segir að geri jörðina grænni. Hann nýtti sér einmitt kúaskít í stærstu yfirlitssýningu sinni sem sett var upp árið 2007 í Yorkshire Sculpture Park, með því að maka skít á rúður sem áhorfendur sáu landslagið í gegnum, þannig vildi hann minna okkur áhorfendur á að skoða landið frá öðru sjónarhorni. Í kynningu þinni er boðskapur og lífsspeki Andys einfaldur þ.e. er að virða og meta náttúrunna , fegurð hennar, margbreytileika og möguleika ásamt því að kunna að umgangast hana á réttan hátt. Bestu þakkir Anna Snædís
SvaraEyðaFín kynning hjá þér Karólína :)
SvaraEyðaÞetta er merkilegur listamaður og gaman að skoða listaverkin hans. Það hvernig hann notar náttúruna til þess að útbúa falleg verk sem samsama sér innan náttúrunnar er magnað. Það er upplagt að kynna þennan listamann fyrir nemendum á öllum aldri. Svo er hægt að fara út í náttúruna með þeim og útbúa útilistaverk. Ég hef unnið svona vinnu með nemendum á miðstigi og það heppnaðist mjög vel. Flestir voru mjög áhugasamir. Þegar ég geri þetta verkefni aftur þá er ekki spurning um það að ég kynni þennan listamann áður en ég læt nemendur vinna sjálfstætt verk.
Kveðja, Sóldís
Takk fyrir þetta :) Ég verð að viðurkenna það að ég vissi lítið um þennan listamann áður en hann var kynntur í staðlotu námskeiðsins. En núna er ég algjörlega heilluð af honum, verkin hans eru svo flott. Þau virka einföld en krefjast alveg örugglega mikillar hugsunar og útsjónersemi. En svo þegar hann er búinn að skapa verkið þá er eins og að það hafi alltaf verið þarna hluti af náttúrunni og umhverfinu. Það er frekar flott, verð ég að viðurkenna og þessi listamaður er einmitt týpan til að kynna fyrir börnum og unglingum í myndmennt og eins í náttúrufræðitímum áður en haldið er með þau út í náttúruna. Bestu þakkir.
SvaraEyðaJá, hann Andy heillar!
SvaraEyðaÞað kemur fram í textanum að "Mörg listaverk hans eru þess eðlis að þau eyðast með tímanum í náttúrunni en þess vegna eru ljósmyndir, skráningar og útgáfu bóka stór og mikilvægur hluti af hans starfi sem listamaður." Mér finnst þetta svo heillandi hugunarháttur. Að skapa úr náttulegan efnivið og svo hefur náttúran sin gang og endurheimtar sitt.
Ég tek sko undir með Önnu Snædísi um boðskap og lífsspeki Andys.
Þessi maður er að skapa ótrúlega flott verk, þetta er eitthvað sem ég myndi vilja gera með krökkum úti í náttúrunni. Útikennsla er oft kennd í skólum og það væri upplagt að kynna þennan listamann og láta börnin svo skapa. haustin eru auðvitað besti tíminn, allt svo litríkt og fallegt. Snjórinn er svo tilvalinn til að gera skúlptúra. Sá að það eru til bækur um hann í bókasafni skólans.
SvaraEyða