Höfundur Helga Þorsteinsdóttir
Nils Udo er þýskur listamaður og náttúrufræðingur, fæddur árið 1937. Um 1960 starfaði hann sem listmálari í París en flutti síðan aftur til heimalands síns og settist að í Bæjaralandi. Á heimaslóðunum komst hann í meiri nálægð við náttúruna, fannst hann verða hluti hennar sem olli miklum breytingum á allri hugsun hans varðandi samspils manns og náttúru og sem listamanns. Í stað þess að mála náttúruna hóf hann að byggja verk sín á náttúrunni sjálfri og markaði það upphaf ferils hans á sviði umhverfislistar. Hann hefur því verið virkur umhverfislistamaður frá því um 1960 og unnið verk sín nær eingöngu í beinum tengslum við náttúruna frá árinu 1972. Hann er því einn af frumkvöðlum umhverfislistar og hefur verið virkur á sviði umhverfismála og náttúruverndar um áratugi.
Náttúran er honum uppspretta og innblástur fyrir verkin sem hann gerir. Hann hóf að gróðursetja tré og jurtir með ákveðnum hætti s.s. í hringi eða önnur form og þannig heldur náttúran áfram ýmist að þróa verk hans eða þá að þau hverfa að lokum og má segja að þar takist listin og náttúran í hendur. Sérhver hluti verka hans er áköllun á það landslag sem hann er staddur í hverju sinni og undirstaðan í verkum hans eru eingöngu náttúruleg efni, allt sem hann getur fundið og safnað á þeim svæðum sem hann vinnur á s.s. trjástofnar, ber, prik, plöntur, leir, gárur á vatni, sandur, óhreinindi og fleira. Notkun lífrænna efna gera það að verkum að verkin hans eru fæst varanleg heldur eyðast af sjálfu sér í náttúrunni þar sem þau voru gerð en þó hafa nokkur verka hans verið flutt milli staða til sýnis. Önnur hafa verið ljósmynduð og skjalfest í bókum.
Segja má að Udo vinni verk sín samhliða náttúrunni þar sem hann grípur inn í af mikilli nærfærni og reynir með íhlutun sinni að gæta fyllsta samræmis við náttúruna. Þannig verður náttúran svið þar sem listamaðurinn leggur fram umræðu um samskipti manns og náttúru í síbreytilegum heimi en hann vill með verkum sínum vekja fólk til umhugsunar um það hversu viðkvæm náttúran er og umgengni okkar við hana. Verkum hans er fremur ætlað að lýsa en að skilgreina og þau eru í senn bæði töfrandi og ljóðræn þar sem skynjun er sterkur þáttur og sínálægur. Upplifunin felst ekki bara í því að sjá og snerta heldur einnig að heyra ásamt því að finna lykt og bragð. Þannig verður upplifunin sterkust að hans mati.
Verk Udos eru í mörgu hliðstæð verkum Andy Goldsworty, David Nash eða Bog Verschureren. Þau hefur hann unnið víða um heim s.s. í Evrópu, Japan, Ísrael, Indlandi og Mexíkó og Bandaríkjunum.

Heimildir.
http://www.sculpture.org/documents/scmag99/sept99/nils/nils.shtml
http://www.knowitall.org/naturalstate/html/acc-fa/Nils_Udo/Introduction.cfm
Gaman að lesa um Nils-Udo, takk fyrir að kynna hann fyrir okkur. Ég get alveg gleymt mér við að skoða myndir af verkum þessara náttúrulistamanna sem hafa verið kynntir. Ótrúlegt hvað sum verk þeirra eru einföld og samlagast náttúrunni.Líka áhugavert að hugsa um samruna listar og náttúru, að vinna verk sem náttúran svo mótar eftir veðri og vindum eða lætur jafnvel hverfa. Nils-Udo gróðursetur tré og runna á þann hátt að þau myndi mynstur. Það væri gaman ef íslenskir skógarbændur notuðu hugmyndaflugið og gróðursettu t.d. mismunandi trjátegundir þannig að útkoman yrði fallegt mynstur eða form í fjallshlíðum :)
SvaraEyðakv. Ragna
Takk fyrir þessa frábæru kynningu Helga!
SvaraEyðaÉg vissi mjög lítið um þennan listamann, rétt kannaðist við nafnið hans, kannski bara af því það er svolítið sérstakt. Hann virðist bera ótakmarkaða virðingu fyrir náttúrunni og þetta að vinna með náttúrunni í náttúrunni sjálfri er svo fallegt. Mér finnst verkin hans mjög falleg, samt einhvern veginn svo ótrúlega hógvær. Kveðja, Svana.
Enn einn listamaðurinn sem gaman er að kynnast. Er það rétt hjá mér en eru það frekar karlmenn sem eru í náttúrulistinni en konur? En Nils-Udo er frábær, flott verkin hans og gaman að skoða. kv. sdis
SvaraEyðaMjög áhugaverðugur listamaður. Ég segi eins og Svana ég vissi ekki mikið um þennan listamann en hann var greynilega að gera frábæra og fallega hluti. Mjög flottar myndirnar hans hér að ofan, svo ótrúlega fallegar. Greynilegt er að hann sé mikill náttúruunnandi og að hann vilji hafa náttúruna fallega. Já það væri sko gaman ef íslenskir skógarbændur gerðu svona falleg listaverk hér á landi, þó við eigum nú ótrúlega fallega náttúru hér á Íslandi. Skemmtileg kynning, það er örugglega gaman að skoða meira um þennan listamann :)
SvaraEyðaÁhugaverður listamaður sem þú valdir þér að kynna Helga.
SvaraEyðaTek undir orð Rögnu hve áhugavert það er að huga að samruna listar og náttúrunnar. Hvenær sleppir listaverkinu og hvenær tekur náttúran við?
kv Ásthildur
Góð kynning á listamanninum Nils Udo. Það var mjög skemmtilegt að skoða myndirnar hans og lesa þessa kynningu.Sammála Rögnu um hvað sum listaverkin virðast einföld en falla síðan alveg inn í náttúruna eða samlagast henni. Þetta væri ef til vill góð hugmynd fyrir skógarbændur eins og Ragna segir. Ég ætti ef til vill að hafa þessa hugmyndi í huga þegar við heima hjá mér förum að planta í vor.
SvaraEyðaKveðja Anna
Takk fyrir innleggin stelpur.
SvaraEyðaMig langaði að bæta því við af því að við, að við “hreiðurgerðina” þar sem Udo er með bleiku snjóeggin þá notaði hann berjasafa úr berjum sem hann hafði fundið í umhverfinu. Sýnir hversu fjölbreytt efni hægt er að nota – ef hugmyndaflugið er í lagi.