
Kynning á listamanni(konu)
Carol Hummel
Carol Hummel er grafískur hönnuður, ljósmyndari og högmyndari að mennt.
Ég hef valið að fjalla um nýleg verk eftir Carol. Verk hennar fjalla um andstæður. Hún hugsa um náttúruna sem karlkyns og það sem hún skapar er og bætir við í náttúruna hugsa hún sem kvenkyns. Hún túlka innsetningarnar sem vírus sem treður ser in og truflar. þær eru fallegar og og samt "hættulegar" fyrir náttúruna. Hættulegar á þann hátt sem gerviefni eru í náttúruna. Carol velta fyrir sig hvernig hreyfing milli það sem er lífrænt og gervi, skrautlegt og það sem er banvænt. Innsetningar eru oftast litríkar, fallegar, auðsjáanlegar og stangast á við umhverfið sem þau eru sett upp.
Innsetningar hennar Carol´s eru heklað form. Hún nota þetta form til að klæða t.d. tré með. Tréð er hugsað sem karllægur þáttur sem eru harðar og grófur á moti efninu sem er kvenlægur sem veitir hlýju og huggun. Efnið gefur huggun og vernd en á sama tíma kæfir það. Þetta er líka að túlka náttúra sem er algjörlega umvafinn menningarlegum áhrifum. Áhrif sem geta verið falleg en samt þrengt að og umkringja umhverfið, með þeim afleiðingum að drepa náttúrunna.
Í fyrsta skipti sem ég sá verk eftir hanna vissi ég ekki hvaða merking var að bak við en verkið fekk mér að brosa. Verkið fekk mér að staldra við og lesa meira.
Smella á linkið til að skoða myndir
http://www.carolhummel.com/?action=portfolio&nav=recent
Pæla í t.d. lit, form, aðferð, samsettning og efni.
What were your first impresisons?
How are you inspired by this work?
Does it give you ideas to work with, both in the classrom and/or outdoors?
Það var virkilega skemmtilegt að kynnast þessari hugmyndaríku listakonu og skoða verkin hennar. Litríku verkin hennar eru mörg hver svo barnsleg og einlæg og ég heillaðist alveg af verkinu Tree cosy. Tré sem er örugglega gott að faðma.
SvaraEyðaÞað er líka heilmikill húmor í mörgum verka hennar sem laða auðveldlega fram bros eins og verkaröðin Down under og Long under. Skondin og skemmtileg hugmynd – sem óneitanlega væri gaman að sjá víðar.
Já þetta er aldeilis skemmtileg listakona sem þú hefur valið Michelle. Verkin eru litrík og full af gleði. Frábær hugmynd að klæða trén svona í litríkan búning og þetta verður eins og ævintýragarður að koma inn í.
SvaraEyðaEinnig frábær verkin þar sem hún klæðir trén í nærbuxur og sýnir manni að hún er húmorísk þessi listakona með ríkt hugmyndaflug.
Sum verkin gefa mér hugmyndir í vinnu með börnunum eins og t.d. vinnu með garn. Hægt er að vefja því utan um nánast hvað sem er í umhverfinu og búa til stórt vefstykki. Einnig er hægt að búa til samvinnuverkefni allra í bekknum eða jafnvel allra í skólanum með að hver og einn geri eitt lítið heklað stykki og svo er hægt að festa þau saman og klæða það sem hugurinn girnist úti í náttúrunni.
Kær kveðja Rannveig
Kv. Rannveig
Þetta er bara snilld, við getum klætt tré í lopapeysu, það væri flott. Hlakka til að sýna krökkunum þessar frábæru hugmyndir.
SvaraEyðakv.sdis
Michelle mjög flott kynning hjá þér og góð túlkun á verkum listakonunnar.
SvaraEyðakv Ásthildur
Takk fyrir :-)
SvaraEyðaMjög gaman að skoða myndir listakonunnar og þetta er frábær hugmynd að hekla utanum tré. Ég hugsa að börnum myndi finnast frábært að hitta svona tré. Hugmyndin myndi sennilega höfða vel til barna ef þau fengju að vefja tré eða vefa mottur til að klæða jörðina.Flott kynning hjá þér.
SvaraEyðaKveðja Anna Gunnbjörnsd
Þetta er áhugaverð listakona, takk Michelle fyrir að kynna hana fyrir okkur. Gaman að sjá þessar hugmyndir hennar með tréin, hægt að hafa þær til hliðsjónar í vinnu með börnum. Mér datt líka í hug tréið sem ég sá sl. haust í garðinum við Álftamýrarskóla sem er alsett litlum speglaflísum, mjög flott. En mynd og texti af rauða teppinu (red carpet) heillaði mig.
SvaraEyðaKveðja Ragna
Þetta er virkilega skemmtileg listakona og flott kynning hjá þér. Litagleðin og einfaldleikinn munu áreiðanlega heilla börn strax. Það er e-ð svo heimilislegt við þessi verk - og kósý ; )
SvaraEyðaFlott dæmi um myndlist, náttúru og samfélag.
Kveðja,
Sólveig
Skemmtileg verk! Við fyrstu sýn fæ ég einmitt þessa tilfinnigu sem þú talar um að þetta sé eins og vírusar sem eiga ekki heima í náttúrunni. Vonandi er nú samt garnið ekki gerviefni! En á sama tíma virkar ekki Silver Island Mountain á mig sem vírus, frekar sem eftirlíking á hvernig náttúran virkar í raun. Berið myndirnar t.d. saman við myndina af mosanum sem má finna í "Formmyndir náttúrunar" sem Jón var að senda okkur. Náttúran og umhverfið okkar er "full af vírusum" og baráttan um rými raunveruleg. Kannki er ekki bara verið að fjalla um gerviefni í náttúrunni heldur einnig um báratta afla í náttúrunni? Í þessu samhengi fer ég að velta fyrir mig mannlegt og kvenlegt eðli sem hún virðist líka fjalla um. Þar sem mannlegt og kvenlegt eðli virðist aðgreint hjá henni í þessum verkum með hekluumvafið tré. En þarf það að vera barátta? Út frá mínum pælingum á þessu stigi hefði ég frekar viljað sjá meira samspil, Yin og Yang, en eitthvað sem "kæfir". Kannski geta öflin lifað í sátt og samlýndi? Menningin og náttúran.
SvaraEyðaKveðja Anna Sofia
Skemmtilegt að fá tækifæri til að kynnast verkum þessarar listakonu, takk fyrir það :)
SvaraEyðaMörg mjög skemmtil verk og ólík,fallegt þetta með fuglunum sem hún kallar
Freedom fence.
Kv.Kristín