9/23/2009

Louisa Matthíasdóttir



Louisa Matthíasdóttir. (1917-2000)
Louisa fæddist í Reykjavík. Foreldrar hennar voru áhugamenn um listir og bernskuheimili hennar var mikið menningarheimili. Hún var síteiknandi á sínum yngri árum og fór aðeins 17 ára gömul í Kunsthaandværkerskolen í Kaupmannahöfn. Þar var hún við nám í þrjú ár(1934-1937). Eftir að hafa dvalið heima á Íslandi fór hún aftur til náms og nú til Parísar. Hún stundaði nám í einkaskóla í Maison Watteau undir leiðsögn Marcel Gromaire í eitt ár (1938-1939). Í byrjun stríðs kom Louisa aftur heim og vann að listsköpun, æfði sig í að mála eins og hún orðaði það oft sjálf. Hún fór síðan til New York og stundaði nám við Art Students League og einnig í einkaskóla Hans Hoffmann næstu tvö árin (1942-1944). Hans Hoffmann (1880-1966) varð einn helsti boðberi modernismans þótt hann sé best þekktur sem abstrakt málari. Náttúran og litir voru sterk undirstaða í verkum hans. Það má segja að Louisa hafi fetað í fótspor læriföður síns hvað það snertir. Louisa giftist listmálaranum Leland Bell árið 1944 og settist að í Bandaríkjunum.
Fyrstu einkasýningu sína hélt Louisa í New York árið 1948 og hérlendis árið 1987.
Verk hennar eru langflest af hlutlægum toga. Mikil kyrrð er yfir myndum hennar sem margar hverjar vísa til landslagsins og bjartra æskuáranna heima á Íslandi. Hún málar m.a. fólk, íslensk þorp, íslenskt landslag og íslensku húsdýrin. Verk hennar mynda sjálfstæða og töfrandi veröld lita, stórra og einfaldra forma og tákna. Louisa var fámál og hlédræg og talaði sjaldan um verk sín eða feril. Hún fór sínar eigin leiðir í listsköpun, ósnortin af stefnum samtíðarinnar og öðlaðist verðskuldaða viðurkenningu og frægð sem listamaður.
Það er gaman að skoða verk Louisu með tilliti til forma s.s. þríhyrnings- og rétthyrningsforma. http://louisamatthiasdottir.com

7 ummæli:

  1. Gaman að lesa þessa kynningu hjá þér Helena. Louisa hefur alltaf heillað mig. Það er eins og þú segir ákveðin kyrrð yfir myndunum hennar sem lætur manni líða vel. Ég heillast alltaf mest af því í málverkum. Gaman að hún skuli mest mála íslenskt landslag þó svo að hún hafi sest að í Bandaríkjunum. Það er svipað og listamaðurinn Eggert Pétursson, hann var búsettur erlendis í einhvern tíma en málaði samt alltaf íslensk blóm og náttúru. Held að það væri gott að kynna þessa listakonu fyrir nemendum, t.d. er hægt að láta þá skoða liti og form í myndunum hennar.

    Kveðja, Sóldís

    SvaraEyða
  2. Eins og Sóldís sagði hér á undan, þá hefur Lousia alltaf heillað mig líka, amma mín gaf mér bókina um hana í útskriftargjöf og ég hef skoðað hana fram og til baka. Það sem heillar mig mest við þessa listakonu eru þessir sterku litir og einföldu form sem hún notaði. Hún segir svo margt í myndum sínum án þess að rembast við það. Ég get endalaust horft á myndirnar hennar og þá sérstaklega þær sem hún málaði af íslenskum sveitum og bæjum. Þessi mynd sem er sýnd hérna ap ofan er alveg ótrúlega falleg og litirnir í henni eru ævintýralegir og mynda svo mikla heild. Takk fyrir þetta.

    SvaraEyða
  3. Fínt hjá þér Helena, frábær listamaður sem þú valdir að fjalla um. Louisa er líka í miklu uppáhaldi hjá mér, frábært hvernig hún túlkar landið okkar í þessum hreinu og fallegu litum.

    SvaraEyða
  4. Takk fyrir Helena, já ég verð nú að segja það sama og þær sem eru búinar að commenta hjá þér, þá er hún Louisa líka í uppáhaldi hjá mér. Þessu einföldu form og litir kalla á mann.

    SvaraEyða
  5. Fín kynning hjá þér Helena. Fín tillaga að nota Louisu í kennslu á formfræði...verk hennar henta líka vel í tengslum við litafræðikennslu.
    Kveða Ásthildur

    SvaraEyða
  6. Sæl, ég er mjög hrifin af Louisu, myndir hennar eru svo barnslegar og einlægar og með fallegum og sterkum litum. Ég held að myndverk hennar henti vel til kennslu yngri barna. Þau eru líka skíljanleg og ná strax augum fólks.
    kv. Ragna

    SvaraEyða
  7. Takk fyrir þessa kynningu Helena. Louisa er í miklu uppáhaldi hjá mér eins og mörgum öðrum og verk hennar eru tilvalin í lita og formfræðikennslu. Heimþrá var orðið sem mér flaug í hug þegar ég las kynninguna um Louisu.
    Kveðja
    Guðrún Þorkels

    SvaraEyða

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.