Komið þið sæl,
Ég valdi að fjalla um greinina An Eye on the Environment.
Hér er verið að lýsa bókinni (sem er á bókasafn KHÍ) An Eye on the Environment eftir Bev Joicey frá árinu 1986.
Ef ég skil greinina rétt, þá er þessi bók afrakstur verkefnis sem var stutt af WWF, World Wide Fund í Bretlandi sem vinnur að verndun umhverfis og dýralífs. Markmið verkefnisins var að safna saman og koma á framfæri hugmyndir og leiðir fyrir kennara að koma umhverfismálum að í kennslunni á öllum aldursstigum.
Færð eru rök fyrir persónulegum ávinningum fyrir einstaklinga sem hljótast af því að skoða og upplifa náttúruna. Aðrir ávinningar eru kynntir eins og t.d. aukin umhverfismeðvitund og myndun sjálfstæðra skoðana nemenda á umhverfismálum.
Í bókinni er lýst hvernig höfundur notaði myndlist til þess að fá nemendur til að skoða, rýna í, kynnast náttúrunni og einbeita sér. Sjálfsþekking nemenda getur aukist með því að þeir kynnist náttúrunni betur.
Tilgangurinn með því að nemendur kynnist og skoði náttúruna er að mynda tengsl milli nemandans og náttúrunnar. Með því að þjálfa nemendur í gegnum myndlist að opna augun, taka eftir smáatriðum og gefa tíma til íhugunar er verið að auka líkurnar á því að nemendur verði næmari einstaklingar, taki betur eftir því umhverfi sem þeir lifa í og læra betur að meta það.
Bókin gefur skýr dæmi um verkefni sem hvetja nemendur til að spyrja spurninga og hjálpa nemendum að opna augun fyrir umhverfi sitt og upplifa það á nýjan hátt. Þar koma fram tillögur um það hvernig á að innleiða verkefnin, aðferðir og verkfæri.
Joicey seigir að tilgangur verkefnisins og kennsla myndlistar er að hjálpa nemendur að skilja betur umhverfið í kringum þá og þar með læra þeir að skilja sjálfan sig betur.
Kennsluskipulagið í bókinni hentar sérstaklega vel nýjum kennurum í myndmennt. Þar eru að finna aðferðamiðaðar leiðir sem eru auðskiljanlegir, sveigjanlegir og auðveldar er að tileinka sér.
Mynddæmi eru gefin fyrir verkefnin sem fram koma í bókinni.
Kær kveðja,
Karólína
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hæ Karólína...áhugaverð grein þarna, fær mig til að vilja skoða þessa bók nánar og taka upp úr henni verkefni til að nota seinna meir við kennslu...það er bæði auðvelt og sniðugt að nota myndlist til að kenna nemendum um umhverfið og náttúruna...hægt að finna svo margar skemmtilegar leiðir til þess...sniðugt að safna þessum hugmyndum og aðferðum saman í eina bók til þess að hjálpa kennurum til að átta sig á því hvernig best er að kynna nemendum náttúruna og sitt nánasta umhverfi sem er nauðsynlegt fyrir hvern og einn einstakling...allir þurfa að skilja umhverfið og sjálfan sig betur...aukin umhverfisvitund er nauðsynleg og leiðir bara til góðs fyrir alla...persónulega finnst mér að auka ætti kennslu um náttúru og umhverfisvernd á öllum skólastigum, bæði í grunn- og í framhaldsskólum landsins og nota til þess áhugaverðar og spennandi kennsluaðferðir...takk fyrir þetta, kveðja Sigrún
SvaraEyðaGóð kynning hjá þér Karólína :) Ég er allavegana ákveðin í því að skoða þessa bók nánar!
SvaraEyðaÉg er mjög sammála þeirri hugmynd að nemendur læri meira um umhverfið sitt og hvað það skiptir miklu máli í okkar daglega lífi.
Það getur aldrei verið neitt annað en gott að nemendur skoði og upplifi náttúruna. Það er nauðsynlegt í okkar hraða samfélagi að hjálpa nemendum að stoppa og skoða smáatriðin í náttúrunni. Það hlýtur að gera nemendur meðvitaðri um umhverfið sitt og kenna þeim að meta það.
Kveðja, Sóldís
Karólína.
SvaraEyðaÞessi bók virðist mjög áhugaverð og umfjöllun þín um hana góð. Þú hefur vakið áhuga minn, ég ætla að ná mér í hana á safninu ef hún er til þar.
Það er alveg augljóst að hver og einn einstaklingur sem fær tækifæri til að upplifa náttúruna fær persónulega mikið út úr því og verður bæði skilningsríkari og "ríkari".
Það er örugglega hægt að þjálfa nemendur á margvíslegan hátt í gegnum myndlist, það er að opna augun og taka eftir þessu litla í umhverfinu eða náttúrunni og einnig að gefa þeim tíma til að skynja náttúruna. En þetta eykur líkurnar á því að nemendur nemi og skilji umhverfi sitt betur.
Ég er svo sammála því að það eigi að tengja myndlistina við upplifun á náttúrunni enda hvað er list svo sem annað en túlkun á náttúrunni?
Kveðja, Svana.
Bestu þakkir fyrir að benda á þessa bók Karólína. Ég er ákveðin í að skoða hana nánar. Hugmyndir að verkefnum tengdum umhverfismálum er einmitt eitt af því sem okkur kennurum vantar sárlega. Einhver hugmyndabanki sem hægt væri að leita í og einnig leggja inn hugmyndir að verkefnum. Gæti t.d. verið á síðu Landverndar (Grænfáninn). Það væri ekki úr vegi að benda þeim á það.
SvaraEyðaTakk fyrir kynninguna Karólína. Þú hefur vakið áhuga minn á að skoða nánar þessa bók. Flott orðað hjá Joicey: að hjálpa nemendum að skilja betur umhverfið í kringum sig og þar með læra þeir að skilja sjálfan sig betur.
SvaraEyðaKveðja
Guðrún Þorkels