9/23/2009

Robert Smithson

Anna Snædís Sigmarsdóttir


Robert Smithson (1938-1974)

Er bandaríkjamaður fæddur í New Jersey 2.janúar 1938. Hann er einn af þekktustu listamönnum 20 aldarinnar í gerð myndverka sem tengjast náttúrufyrirbærum. En í upphafi aldarinnar höfðu listamenn sagt skilið við hina hefð bundnu sýn á náttúrunna. . Áherslan var nú á strangfleti sem byggðu á litum og ljósi. Sýn listamannanna var nú allt önnur en þeir höfðu vanist og þeir vildu ekki lengur reyna að líkja eftir náttúrunni, heldur varð náttúrann til í hugarheimi listamannsins. Smithson hafði þetta nákvæmlega í huga þegar hann hóf að skapa náttúrufyrirbæri sín. Hann sagði „ Ég er fyrir list sem tekur tillit til beinna áhrifa náttúrufyrirbæranna eins og þau sjálf eru frá degi til dags óháð hvernig þau birtast“. Smithson vildi gera náttúrunna að einhverskonar snertanlegu fyrirbæri, að vinna beint með náttúrunna í stað þess að endurskapa einhverskonar stemningu tengda náttúrunni. Hann færði náttúrunna úr stað og gaf henni nýja vídd með því að færa hana inn í sýningarrými, eða bæta við áhrifaþáttum eins og speglum eða öðru sem gerði það að verkum að áhrif náttúrunnar varð síbreytilegt. Hann vildi skapa samtöl náttúrunnar við manninn með því að nýta öll þau jarðefni sem náttúran hefur upp á að bjóða, hann vildi að maðurinn gæti tengst náttúrunni á þann hátt að skilin milli náttúru og listar yrðu sem eitt.


Eitt frægasta verk Smithson Spiral Jetty frá árinu 1970 (sjá mynd) http://www.youtube.com/watch?v=fTx4Pp4aPXA) var unnið á afskektum stað í Salta vatninu í Utha í Bandaríkjunum. Þegar verkið var fullkomnað þá fór það fljótlega undir vatn og hvarf sjónum manna. Gerð verksins var fest á filmu og ljósmyndað og þannig kynntust flestir áhorfendur verkinu. En það var síðan á 21 öldinni að verkið kom upp úr vatninu og var þá orðin hluti af náttúrunni eins og það væri eigið sköpunarverk. Smithson hefur haldið margar sýningar um allan heim bæði á myndverkum, teikningum, skúlptúrum og fleiru sem tengjast náttúrunni. Hann var atkvæða mikill í listsköpun sinni í þau 30 ár sem listferill hans spannaði yfir. (sjá vefsíðu: http://www.robertsmithson.com/). Sterkasta reynsluheimur og tilfinning listamannsins er upplifunin við sköpun listaverksins. En eftir situr verkið sem er til þess að auka reynsluheim áhorfenda. Bæði listamaðurinn og áhofandinn hafa báðir upplifað nýja reynslu og sýn sem byggja á samtölum við náttúrunna sem verða til hugarheimi beggja aðila. Heimildir: http://www.robertsmithson.com/

8 ummæli:

  1. Gaman að skoða og að verkið skildi koma upp aftur og vera þá hluti af náttúrunni eins og hún hafi sjálf skapað það.
    Kveðja Anna

    SvaraEyða
  2. Fín umfjöllun hjá þér Anna Snædís
    Kveðja Ásthildur

    SvaraEyða
  3. Ég kíkti á myndskeiðið og varð svolítið forvitin, það er tilgangurinn með verkefninu er það ekki ;) Þegar ég var búin að skoða þetta mynskeið þá varð ég að sjá meira og meira og meira. Mér brá nefnilega aðeins þegar ég sjá þessar stórvirku vinnuvélar að athafna sig með stórgrýti við undirbúning verksins. En Það er magnað að sjá að í lokin, af jafnsléttu, þá rennur verkið saman við heildar-umhverfið alveg áreynslulaust. Kom þægilega á óvart :)

    SvaraEyða
  4. Erna Sigga ég er alveg sammála þér... maður fékk aðeins fyrir brjósið þegar vinnuvélarnar brömluðu þarna um í náttúrunni. En þessi tilfinning á alveg rétt á sér, við viljum oft ekki hrufla við náttúrunni. En ef vel er staðið að hlutunum þá er það þess virði líkt og þetta frábæra verk Smithson.

    SvaraEyða
  5. Já, hvar liggja mörkin á milli þess að vinna umhverfisspjöll eða búa til list?

    SvaraEyða
  6. Anna Snædís.
    Takk fyrir frábæra kynningu á mjög svo áhugaverðum listamanni, svakalega hefur þessi maður hugsað og framkvæmt stórt!
    Smithson vann svo sannarlega beint með náttúruna og á þann hátt gefur hann henni nýja vídd. Þetta er mjög áhugavert verk, einnig var gaman að skoða brotna hringinn sem Smithson gerði í Hollandi.
    Kveðja, Svana.

    SvaraEyða
  7. Anna Snædís.
    Kærar þakkir fyrir kynninguna. Ævinlega verið mjög hrifin af verkum Smithson. Verk hans hafa verið framúrstefnuleg á sínum tíma 1970 gerir hann Spiral Jetty. Í dag er umhverfislist sjálfsögð en fyrir nær 40 árum ekki.
    Kær kveðja,
    Sólrún

    SvaraEyða

Ath: Aðeins meðlimir bloggsins geta birt ummæli.