Lynne Hull er Bandarísk og kemur frá Colorado. Hún er að fást við umhverfislist en sérhæfir sig í listgrein sem heitir á ensku "trans-speices". Lynne Hull vinnur verkin í samvinnu við náttúru og dýralífs stofnanir. Hún hefur unnið í 14 mismunandi fylkjum í Bandaríkjunum en einnig í öðrum löndum eins og Kanada, Mexico, Kenya, Englandi, Norður-Írlandi og Frakklandi.
Það sem m.a. er merkilegt við verkin hennar er að hún er ekki eingöngu að skapa list fyrir augað heldur er markmiðið að skapa eitthvað sem nýtist öðrum tegundum jarðarbúa. Lynne Hull segir sjálf að hún sé að skapa skúlptúra eða innsetningar sem veita skjól, fæðu, vatn eða rými fyrir dýralíf í náttúrunni. Ástæðan fyrir því segir hún vera til að vega upp á móti ágangi mannverurnar á umhverfi og náttúru. Verkin hennar mótast í sampili umhverfis þar sem verkin eru í rauninni ekki fullkláruð fyrr en þau eru orðin samþætt umhverfinu og dýralífinu á staðnum. Dýr sem hafa notið góðs af verkum hennar eru t.d. ýmsar tegundir fugla, lax, fiðrildi, skjaldbökur, bifur, býglugur, froskar, leðurblökur o.fl. Í einu verki Lynnes bjó hún til skorur í kletti sem safnar svo upp rigningarvatni þar sem aðgangur að vatni er lítill.
Hugmyndin að baki starfi hennar er verðugt viðfangsefni, eitthvað sem við höfum öll gott af að íhuga. Það er að segja okkar áhríf á umhverfi og lífsskilyrði dýra. Mikilvægi þess að skilja og bera virðingu fyrir umhverfi okkar og öðrum verum jarðríkisins. Að reyna að lífa í sátt og samlyndi, taka tillit til og jafnvel auðvelda lífsskilyrði okkar allra. Er það eitthvað sem þú og ég getum gert til þess að auðvelda dýrunum í kringum okkur?
Ein leið sem er okkur ekki fjarlæg er t.d. að smiða fuglahús. Endilega farið inn á síðu hennar til að skoða einfaldar hugmyndir sem eru jafnvel skemmtilegar fyrir börn eins og ,,pöddutrjábúturinn" sem getur orðið hýsill fyrir pöddur en spennandi vettvangur rannsókna um leið.

Kærar þakkir fyrir kynninguna Anna Sofia :) Ég fór rakleitt inn á heimasíðuna til að skoða meira, þetta er sko gósenland góðra hugmynda sem er ALLS EKKI erfitt að útfæra fyrir skólastarfið. Hvar er ekki hægt að búa til pödduheimili? :)
SvaraEyðaEn það eru líka fjölmargar hugmyndir þarna sem ég vildi óska að við sæjum almennt í umhverfinu. Það var tvennt sem heillaði mig sérstaklega, annars vegar steinarnir sem dýramyndir, nöfn og fótspor voru meitluð í og hins vegar fugla-stöplarnir með upplýsingum um farfuglana, hvert þeir fara, hvað það er langt flug o.s.frv. Hugsið ykkur hve mikið skemmtilegra og auðveldara það væri að færa kennsluna ÚT og náttúruna INN í skólastarfinu, og geta notið þess um leið og við miðlum og kennum ef það væru svona dásamleg verk í okkar nærumhverfi. Vá.
Flott Anna, hér er greinilega MIKILL náttúruunnandi á ferðinni. Gaman að kynnast þeirri hugmynd að listin nýtist einhverjum á einhvern hátt... þetta er það sem þarf fyrir framtíðina. Líka fín kynning hjá þér, engar óþarfa upplýsingar. frábært!
SvaraEyðaKær kveðja,
karólína
Mér líst vel á þessa listakonu, gaman að sjá útfærslu hennar á fuglahúsunum og hvíldartréð var frábært en einfalt. Greinilega mikil náttúrukona sem vill láta gott af sér leiða um leið og hún vinnur að list ssinni. Takk fyrir skemmtilega kynningu.
SvaraEyðakv. Ragna
Fín kynning
SvaraEyðaÉg tek undir orð Ernu Siggu að mörg verka hennar er frábær kveikja fyrir kennslu með börnum. Bæði í myndmennt sem og í allri nýsköpunarvinu og í tengslum við umhverfismennt
Takk fyrir kynninguna á Lynne Hull. Hugmyndir hennar eru sannanlega skemmtilegar og það sem meira er þær hafa notagildi fyrir lífverur. Gaman að skoða heimasíðuna hennar. Það væri frábært að fá svona listamenn til að taka þátt í listakennslu með börnum. Ég reikna með að sýn þeirra og tilfinnig fyrir listum og náttúru myndi breytast og þau myndu skynja þessa þætti náms á mun fjölbreyttari hátt en þau hafa í flestum tilfellum tækifæri í skólastarfi í dag.
SvaraEyðaKveðja Anna