Strijdom van der Merwe
Listamaðurinn sem ég ætla að fjalla um heitir Strijdom Van der Merwe og kemur frá Jóhannesarborg, Suður Afríku. Hann fæddist árið 1961, ólst upp á bóndabæ í útjaðri Jóhannesarborgar.
Van der Merwe nam listir meðal annars í Suður Afríku, Tékklandi, Hollandi og Englandi. Hann nam meðal annars grafíklist sem hann notar mikið við vinnu sína. Van der Merwe hefur starfað sem listamaður síðan 1996 og haldið fjölda sýninga á undanförnum árum og eru mörg verka hans í eigu einka og opinbera aðila.
Sem náttúru listamaður notast hann við það efni sem er við hendina hverju sinni. Hann notast aðalega við tré, sand, vatn og lauf. Hann vinnur verk sín í vatni, á fjöllum og í skógum. Notast við rúmfræðina, lagar hvert verk að landslaginu hverju sinni.
Van der Merwe segir í viðtali að í náttúrulistinni séu tækifærin og möguleikarnir endalausir og það er svo spennandi að vinna með efni sem honum hefði aldrei dottið í hug að hann ætt eftir að vinna með. Vinna hans hefur mótast af verkum Andy Goldsworthly og Urs Twellman.
Van der Merwe vinnur náttúrulistaverk sín, myndar þau og vinnur þau síðan í silkiprenti og geri úr þeim silkitjöld.
Hann notar liti og form náttúrunnar við listsköpun sína. Hann gefur verkum sínum ekki alltaf nafn heldur frekar lýsingu á hvernig þau eru tilkomin.
Van der Merwe hefur haldið að minnsta kosti eina einkasýningu á ári síðan 1994. En auk þess hefur honum verið boðið að taka þátt í fjölda samsýninga og að taka þátt í sér verkefnum eins og t.d. að vera fulltrúi Suður Afríku þegar 50 ár voru liðin frá Koreu stríðinu. Hann var heiðraður af African Academy of Arts and Science. Var tilnefndur til Daimler Chrysler verðlaunanna fyrir skulptúra á opinberum stöðum. Verið boðið að taka þátt í sýningum í Suður Kóreu, Tyrklandi, Belgíu, Frakklandi, Svíþjóð, Litháen, Japan, Ástralíu og á Ítalíu.
Á heimasíðu listamannsins er fjöldi frábærra mynda frá honum. Set slóðina hér.
og síðan má sjá eitt llistaverka hans á youtube
http://www.youtube.com/watch?v=oDn-4Nj31p0



Sniðug mörg verkin frá þessum listamanni og gefur mér sem leikskólakennara margar hugmyndir að efnivið úr náttúrunni til að vinna með. Það er nefninlega ótrúlegustu hluti hægt að nota úr náttúrunni og umhverfinu og skapa allt mögulegt úr. Flott jólatré þarna úr steinflögunum og fánarnir á ströndinni svolítið sérstakir. Ég sé strax aðra útfærslu mögulega á þessu.
SvaraEyðaKveðja Rannveig
Já það eru margar flottar myndir á heimasíðunni hans, gat bara ekki sett þær hér inn þannig að fólk verður að fara inn á síðuna hans til að skoða og hvet ég fólk til þess.
SvaraEyðakv. sdis
Gaman fyrir mig að sjá listamann frá Suður-Afríku :D
SvaraEyðaGóð og vel uppsett heimasíða hjá honum, og sjá stuttmyndir hans. Verkið hans er ''aðgengilegt'' og einfalt. Það er eitthvað sem maður getur kveikt hugmyndir í verk með börnunum.
Mér finst að verkið hans passar vel inn í náttúruna en stangast ekki í hana. Mér finst verkið róandi og mjög skemmtilegt.
kv.Michelle
Fín kynning hjá þér Sigga Dís
SvaraEyðaÉg er sammála Rannveigu, sem kennari sér maður margar sniðugar og áhugaverðar útfærslur á vinnu listamanns í og með náttúruna sem veita manni hugmyndir til að vinna með. Strijdom sýnir okkur hvernig hann vinnur í náttúrunni með það sem náttúran býður uppá. Skemmtileg hugmynd hvernig hann vinnur með appelsínugula litinn í formi fána í snjó og sandi. Ég held að kennarar almennt ættu að skoða síðuna hans hún er mjög skemmtileg.
SvaraEyðaÁhugaverður listamaður.
Kveðja Anna Gunnbjörnsdóttir
Ég heillaðist af því hvernig Strijdom vinnur með vatnið, einfalt og svo fallegt. Hægt að nýta sér þessar hugmyndir með börnum, þeim finnst svo gaman að leika sér með vatn. Ég hef séð börn gera skemmtileg mynstur þegar þau hella úr garðkönnu t.d. því ekki að yfirfæra það í liti og leyfa þeim að mála stærri verk en við gerum venjulega.
SvaraEyðaKveðja Ragna
Takk Ásthildur fyrir að laga fyrirsögnina, nú líður mér betur.
SvaraEyðakv.sdis
Já það er heillandi að sjá hvernig Strijdom vinnur með vatnið. Verkin hans eru góð kveikja og gefa margar hugmyndir.
SvaraEyðaÞað sem mér finnst frábærast við þessi náttúrulistaverk sem ég satt best að segja hafði aldrei pælt í áður, er hvað þau eru frábærlega einföld, kannski bara spýtur eða steinar, raðað á fallegan endurtekin hátt en enda svo sem stórkostlegt listaverk og eins og hann gerir þá vinnur hann við verkið og tekur mynd og síðan bara tekur sjórinn eða rokið þau. Frábært sköpunarform.
SvaraEyðaVerkið með steinana á greinunum í vatninu er ótrúlega skemmtilegt. Sniðugt að vinna svona í vatni með börnum þegar unnið er með speglun. Gaman að spá í hvernig litirnir á steinunum breytast í spegluninni. Flott kynning.
SvaraEyðaKveðja,
Sólveig
Þau eru virkilega skemmtileg fyrir augað þessi verk! Ég væri mikið til í að sjá "tjöldin" hans með eigin augum :)
SvaraEyðaTakk fyrir að kynna þennan frábæra listamann.
SvaraEyðaÉg var alveg heilluð af þessum náttúrulistaverkum, hvernig hann notar vatnið, sand, grjót og gróður á svo einfaldan hátt.
Kv. Kristín
Ég er alveg heilluð af verkunum hans og mér fannst sérstaklega steinarnir sem standa upp úr vatninu á einhvers konar stöngum áhrifamikil. Hann er strax búinn að vera mér innblástur en ég á bara eftir að framkvæma það eitthvern daginn. Einföld og yfir mörgum þeirra finnst mér ríkja ákveðin kyrrð.
SvaraEyðaKveðja
Ragnhildur